Gareth Bale skrifaði undir nýjan samning hjá Tottenham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. júní 2012 15:30 Gareth Bale. Mynd/Nordic Photos/Getty
Gareth Bale verður áfram hjá Tottenham en hann er búinn að skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við félagið. Bale er 22 ára gamall og hefur verið hjá Tottenham frá árinu 2007 þegar hann kom þangað frá Southampton. Bale hefur verið orðaður við önnur lið að undanförnu en nú er ljóst að hann mun spila áfram á White Hart Lane og þá hugsanlega við hlið Gylfa Þórs Sigurðssonar fari svo að íslenski landsliðsmaðurinn komi til Spurs. „Ég hef verið hérna í fimm ár og ef notið hverrar mínútu. Stuðningsmennirnir hafa reynst mér frábærlega og það væri æðislegt að geta launað þeim stuðninginn. Félagið er í sókn og ég vil taka þátt í því. Það var því frábært að ganga frá þessum samningi," sagði Gareth Bale í viðtali á heimasíðu Tottenham. „Ég elska félagið og stuðningsmennina og ég vil hjálpa til að koma Tottenham aftur í Meistaradeildina þar sem við eigum heima. Við erum með ungan og góðan leikmannahóp og þurfum að vinna saman til að koma okkur aftur inn á stóra sviðið," sagði Bale. Gareth Bale hefur skorað 29 mörk í 160 leikjum með Tottenham og unnið sér sæti í velska landsliðinu. Hann hefur verið tvisvar sinnum verið kosinn besti ungi leikmaður félagsins á síðustu þremur árum. Gareth Bale var með 10 mörk og 14 stoðsendingar í 36 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en hann vakti mikla athygli þegar hann skoraði 4 mörk og gaf 4 stoðsendingar í Meistaradeildinni veturinn 2010 til 2011.
Mest lesið Gunnlaugur Árni á U.S. Open Golf Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fótbolti Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Íslenski boltinn Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Fótbolti Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Fótbolti Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Handbolti Fleiri fréttir Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Sjá meira