Enski boltinn

Fellaini útilokar ekki að fara frá Everton

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Marouane Fellaini, leikmaður Everton, segist vera ánægður hjá félaginu en viðurkennir að hann gæti freistast til að fara til stærra félags.

Fellaini skrifaði nýlega undir nýjan langtímasamning við Everton en hefur til að mynda verið orðaður við Chelsea nú í sumar.

„Ef ég þarf að fara annað þá mun ég gera það," sagði hann í samtali við belgíska útvarpsstöð. „En ég er ánægður hjá Everton."

„Ég er metnaðarfullur og langar til að spila í Meistaradeildinni eða Evrópudeildinni. Við náðum sjöunda sætinu með Everton á síðasta tímabili og það var mikil synd að það dugði ekki til að komast í Evrópudeildina."

„Hlutirnir gerast hratt í fótbolta og ég hef verið orðaður við önnur lið áður. Ég er samt enn hjá Everton. En ef metnaðarfullt félag vill fá mig - af hverju ekki?"




Fleiri fréttir

Sjá meira


×