Porto samþykkir 38 milljóna punda tilboð Chelsea í Hulk Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. júní 2012 09:13 Hulk verður 26 ára í sumar. Hann hefur skorað 76 mörk í 166 leikjum með Porto. Nordic Photos / Getty
Allt bendir til þess að Brasilíumaðurinn Hulk gangi til liðs við Chelsea. Porto hefur samþykkt 38 milljóna punda, tæplega átta milljarðar íslenskra króna, tilboð Lundúnarliðsins í sóknarmanninn. Hulk gengur nú til samningaborðsins og ræðir við forráðamenn Chelsea um kaup og kjör. Breski vefmiðilinn Guardian greindi frá þessu í gærkvöldi. Að sögn miðilsins vill Hulk ólmur komast til stærra félags og ekki reiknað með því að launakröfur kappans verði til þess að spilla vistaskiptunum. Roman Abramovich, eigandi Chelsea, á enn eftir að ráða knattspyrnustjóra fyrir næstu leiktíð. Orðrómur hefur verið uppi um að Roberto Di Matteo, sem stýrði liðinu til bráðabirgða og gerði það að Evrópu- og bikarmeisturum, fengi eins árs samnings. Ekki hefur þó verið gengið frá neinu. Allt útlit er fyrir töluverðar breytingar á leikmannahópi Chelsea fyrir næstu leiktíð. Ljóst er að Didier Drogba hefur leikið sinn síðasta leik fyrir félagið. Sömu sögu er að segja um Jose Bosingwa og Salomon Kalou auk þess sem félagið er tilbúið að hlusta á tilboð í Florent Malouda og Michael Essien. Allt útlit er fyrir að Belgínn Edin Hazard sé á leið til félagsins og þá hafa Marko Marin, frá Werder Bremen, og Kevin de Bruyne, frá Genk, einnig gengið til liðs við Lundúnarfélagið.
Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Enski boltinn Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Fleiri fréttir Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Sjá meira