Enski boltinn

Rio ætlar í þjálfun er ferlinum lýkur

Rio Ferdinand, varnarmaður Man. Utd, hefur greint frá því að hann stefni á að gerast knattspyrnustjóri þegar knattspyrnuferlinum lýkur.

"Eftir því sem árunum hefur fjölgað hef ég komist að þeirri niðurstöðu að ég vilji fara í þjálfun eða knattspyrnustjórnun er ferlinum lýkur," sagði Rio.

"Ég elska fótbolta og ég held það væri gaman að vinna með leikmönnum að því að ná því besta út úr þeim á hverjum degi. Persónleg stjórnun er mjög mikilvæg í dag. Ég held ég muni fá mikið út úr því."

Ferdinand segist fá mikið út úr því að kenna ungum leikmönnum og þar liggi hans ástríða.

Rio hefur hugsanlega spilað sinn síðasta landsleik en hann var ekki valinn í enska landsliðið fyrir EM þar sem ekki var hægt að taka bæði hann og John Terry með á mótið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×