Enski boltinn

Rodgers neitar að vinna með yfirmanni knattspyrnumála

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Rodgers á blaðamannafundinum í morgun.
Rodgers á blaðamannafundinum í morgun. Nordic Photos / Getty
Brendan Rodgers, nýr knattspyrnustjóri Liverpool, gerði þá kröfu við undirritun ráðningarsamningsins að hann þyrfti ekki að vinna undir handleiðslu yfirmanns knattspyrnumála.

„Ég vinn best með hópi fólks. Hjá stóru félagi snýst þetta um hópvinnu, þú reddar þér ekkert sjálfur," sagði Rodgers sem sat fyrir svörum á blaðamannafundi á Anfield í morgun.

„Auðvitað þarf leiðtoga í alla hópa en ég gerði það ljóst að ef sá ætti að vera yfirmaður knattspyrnu- eða íþróttamála þá myndi ég ekki skrifa undir," sagði Rodgers.

Damien Comolli gegndi hlutverki yfirmanns knattspyrnumála hjá Liverpool þar til í apríl þegar hann var látinn fara. Liverpool mun ekki ráða nýjan mann í starfið.


Tengdar fréttir

Liverpool búið að ná samkomulagi við Swansea

Liverpool er búið að ná samkomulagi við Swansea um bætur vegna knattspyrnustjórans Brendan Rodgers. Það stendur því lítið í vegi fyrir því að hann geti tekið við Liverpool-liðinu.

Svona tækifæri kemur kannski bara einu sinni

Brendan Rodgers var kynntur sem nýr stjóri hjá Liverpool í dag. Rodgers segir að hann hafi alltaf verið fyrsti kostur félagsins sem arftaki Kenny Dalglish.

Rodgers mættur á Anfield - myndir

Brendan Rodgers var í morgun ráðinn stjóri Liverpool. Það er mikil pressa á þessum 39 ára gamla stjóra enda er hermt að Liverpool hafi greitt Swansea 7 milljónir punda fyrir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×