Sven-Göran útskýrir hvers vegna Ferdinand var ekki valinn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. júní 2012 13:46 Eriksson var síðast í starfi hjá Leicester City í Championship-deildinni en var rekinn í vetur. Nordicphotos/Getty
Sven-Göran Eriksson, fyrrum landsliðsþjálfari Englands, segir ástæðu þess að Rio Ferdinand hafi ekki verið valinn í EM-hóp Englendinga fótboltalegs eðlis. Á vef Guardian er vitnað í Eriksson sem er góður vinur Roy Hodgson, landsliðsþjálfara Englands. Eriksson segir ekkert til í því að Hodgson hafi kosið að velja Ferdinand ekki í hópinn vegna vandamáls sem kom upp í vetur milli Antons Ferdinand, bróður Rio, og John Terry. Terry var sakaður um kynþáttafordóma í leik Chelsea gegn QPR í ensku úrvalsdeildinni í vetur en málið verður þó ekki tekið fyrir fyrr en síðar í sumar. Rio Ferdinand telur að Hodgson hafi ekki valið sig þar sem Hodgson telji sig ekki geta haft Terry og Ferdinand saman í liðinu. Eriksson er ósammála. „Við megum ekki gleyma því að Rio hefur glímt við meiðsli á tímabilinu," skrifaði Eriksson í pistli í sænska dagblaðinu Expressen. „Roy hefur sínar ástæður. Annars hefði hann ekki hafnað Rio í tvígang. Margir skilja stöðuna þannig að ásakanir um kynþáttafordóma hjá Terry sé ástæða þess að Roy skilur Ferdinand útundan. Ég veit fyrir víst að það er ekkert til í því. Hvernig veit ég það? Þið verðið að treysta mér," segir Eriksson. Hodgson valdi Martin Kelly varnarmann Liverpool í hópinn þegar ljóst varð að Gary Cahill yrði frá að hverfa vegna meiðsla. Eriksson segir Hodgson hafa viljað frískan leikmann í hópinn svo skömmu fyrir mót. „Roy vildi leikmann sem er í leikformi. Leikmann sem hefur haldið sér í formi eftir að tímabilinu lauk," segir Eriksson og bætir við að Hodgson fylgist mjög vel með því hvaða leikmenn haldi sér í formi. Hann hvetur sparkspekinga til að dæma frammistöðu Hodgson í stjórastarfinu að loknu Evrópumótinu.
Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjá meira