Lewandowski vill ekkert tala um Manchester United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júní 2012 12:30 Robert Lewandowski fagnar hér marki sínu á móti Grikkjum. Mynd/AP
Robert Lewandowski, framherji pólska landsliðsins, neitaði að svara spurningum blaðamanna um Manchester United eftir leik Pólverja og Grikkja á EM í fótbolta í gær. Lewandowski skoraði fyrsta mark EM í ár en hann hefur verið margoft orðaður við enska stórliðið. Franciszek Smuda, þjálfari pólska landsliðsins, gaf það út fyrir leikinn að Lewandowski myndi spila með Manchester United á næsta tímabili en þessi 23 ára framherji hefur farið á kostum með þýska liðinu Borussia Dortmund. „Ég ætla ekki að einbeita mér að þessu máli núna. EM 2012 er í algjörum forgangi hjá mér," sagði Robert Lewandowski en það er vitað að fulltrúar Manchester United fylgdust nokkrum sinnum með honum á síðasta tímabili. Lewandowski skoraði laglegt skallamark en fékk auk þess nokkur góð færi til viðbótar. „Ég sé eftir því að hafa ekki nýtt fleiri færi í fyrri hálfleiknum. Ég hefði getað skorað tvö eða þrjú til viðbótar en ég ætla samt að vera jákvæður áfram. Það munaði samt bara einu sinni nokkrum millimetrum en ég skora vonandi úr næsta færi," sagði Lewandowski. Sir Alex Ferguson, stjóri United, var á vellinum þegar Lewandowski skoraði þrennu í 5-2 sigri Dortmund á Bayern München í þýska bikarúrslitaleiknum. Lewandowski skoraði alls 22 mörk í þýsku úrvalsdeildinni en hann á tvö ár eftir af samningi sínum við Dortmund-liðið.
Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjá meira