Drogba fer frá Chelsea í sumar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. maí 2012 14:17 Didier Drogba. Nordic Photos / Getty Images
Chelsea hefur staðfest að Didier Drogba muni fara frá félaginu þegar samningur hans rennur út í sumar. Hans síðasta verk var að tryggja liðinu Evrópumeistaratitilinn. Drogba var á mála hjá Chelsea í átta ár og vann marga glæsta sigra með félaginu. Nú síðast hampaði liðið Evrópumeistarabikarnum eftir sigur á Bayern München í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Drogba skoraði jöfnunarmark Chelsea með glæsilegum skalla rétt fyrir leikslok og sá svo um að tryggja liðinu sigur í vítaspyrnukeppni. „Didier er án nokkurs vafa goðsögn hjá Chelsea og verður ávallt hluti af fjölskyldunni. Hann fer nú í kjölfar mikillar velgengni en honum finnst hann þurfa nýjar áskoranir," sagði í yfirlýsingu sem birtist á heimasíðu Chelsea í dag. Franska blaðið France Football hafði greint frá því að Drogba hafi tilkynnt liðsfélögum sínum að hann væri á leið frá félaginu. Hann hefur verið sterklega orðaður við Shanghai Shenhua í Kína sem er sagt reiðubúið að greiða honum ofurlaun. „Ég vildi binda enda á allar vangaveltur um mína framtíð og staðfest að ég ætla að fara frá Chelsea," sagði Drogba. „Þetta var afar erfið ákvörðun fyrir mig og ég er afar stoltur af árangri okkar. En nú er tímabæt fyrir mig að finna mér nýja áskorun." „Við höfum unnið alla titla sem hægt er að vinna og vil ég nota þetta tækifæri til að þakka öllum hjá félaginu, sérstaklega eigandanum Roman Abramovich." „Viðræður fóru fram á góðum nótum og við óskum honum alls hins besta. Hann verður ávallt velkominn á Stamford Bridge, annað hvort sem gestur eða leikmaður," sagði Ron Gourlay, framkvæmdarstjóri Chelsea.
Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira