Mótmæla tónleikum poppdrottningar: Farðu til helvítis Lady Gaga 28. maí 2012 15:51 Frá mótmælunum í Indónesíu. Mynd Ap
Tónlistarkonan Lady Gaga tilkynnti í gær að hún þyrfti að aflýsa fyrirhuguðum tónleikum í Jakarta í Indónesíu vegna hótana þar í landi. Poppdrottningin er vægast sagt umdeild í landinu og voru meðal annars haldin fjölmenn mótmæli vegna komu hennar til landsins. Á skiltunum stóð meðal annars „Segið nei við Lady Satan Gaga“ og „Móðir, skrímsli, farðu til helvítis“. Mótmælendur, sem voru íslamskir, eru mótfallnir viðhorfum tónlistarkonunnar, meðal annars til samkynhneigðar. Þá finnst mótmælendum einnig sýning Lady Gaga með of miklum kynferðislegum blæ og að hún spilli æsku landsins með dónalegum tilburðum sínum. Lady Gaga ætlaði að hunsa mótmælendur og halda tónleikana þrátt fyrir óánægju. Það var þó snarlega hætt við það eftir að hótanir bárust um að mótmælendur hygðust brenna sviðið sem til stóð að Gaga myndir flytja tónlist sína á, auk þess sem mótmælendur ætluðu að koma í veg fyrir að hún kæmist frá flugvellinum á tónleikana. Alls seldust 52 þúsund miðar á tónleika söngkonunnar sem hefðu verið þeir fjölmennustu á tónleikaferð hennar um Asíu. Þá þótti líklegt að mótmælendur hefðu keypt miða á tónleikana til þess eins að valda usla. Tónlistarkonan bað aðdáendur sína afsökunar i Indónesíu vegna þess að hún þyrfti að aflýsa tónleikunum. Hún lofaði einnig að allt yrði reynt svo hún gæti haldið sérstaka tónleika fyrir aðdáendur sína. Lady Gaga skrifaði svo á Twitter síðu sína í dag að það væri ekkert heilagt við hatur.
Mest lesið Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Innlent Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Innlent Íslendingur grunaður um heimilisofbeldi handtekinn í Grikklandi Innlent Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Erlent Alvarlegt vinnuslys í Skagafirði Innlent Þungar áhyggjur af „síversnandi stöðu Íslands“ Innlent Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Erlent „Yfirgangur gyðingahataranna er algerlega óþolandi“ Innlent Fleiri fréttir Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Fúlsaði við þriggja forseta fundi Segja enn og aftur brotið gegn Folbigg Gefa grænt ljós á lengstu hengibrú í heimi „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Aðeins 1,5 prósent ræktarlands enn aðgengilegt og nýtanlegt Segist eiga fund með Pútín Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Fimm hermenn skotnir á herstöð Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Nýr forseti Póllands vill draga úr áhrifum ESB Stendur í vegi rannsóknar á milljarða svikamyllu Birtist óvænt á þaki Hvíta hússins Yfir 400.000 tilkynningar um kynferðisofbeldi Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Sjá meira
Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent
Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent