Enski boltinn

King á leið undir hnífinn

Hnévandræði Ledley King, varnarmanns Tottenham, virðast ekki ætla að taka neinn enda og hann þarf að fara í enn eina aðgerðina í sumar.

King er orðinn 31 árs og hefur verið að glíma við krónísk hnévandamál síðustu ár.

Spurs ætlar ekki að gefast upp á honum og vonast til þess að aðgerðin í sumar og fín hvíld geti komið honum aftur af stað.

"Hann hefur reynt að harka af sér og spila fyrir félagið. Sársaukinn hefur verið of mikill og hreyfigetan ekki nógu góð," sagði Harry Redknapp, stjóri Spurs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×