Enski boltinn

Rio vill fá greiða frá litla bróður

Bræðurnir.
Bræðurnir.
Rio Ferdinand, varnarmaður Man. Utd, hefur hringt reglulega í bróðir sinn, Anton sem spilar með QPR, og hvatt hann til dáða fyrir leikinn gegn Man. City á sunnudag.

Man. Utd þarf á því að halda að QPR taki stig af City til þess að vinna titilinn.

"Rio er duglegur að hringja og biðja um greiða. Þetta snýst samt um okkur. Ég er að hugsa um QPR enda eigum við erfitt verkefni fyrir höndum og þurfum að bjarga okkur frá falli," sagði Anton.

"Við þurfum að næla í að minnsta kosti stig. Við höfum trú á því að við getum gert það. Ef það gengur og Man. Utd verður meistari þá gleðst ég auðvitað með bróðir mínum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×