Enski boltinn

Solbakken tekur við Úlfunum

Úlfarnir eru búnir að finna stjóra til þess að stýra liðinu í B-deildinni næsta vetur. Norðmaðurinn Stale Solbakken hefur verið ráðinn nýr stjóri.

Hann tekur liðinu af Terry Connor sem leysti Mick McCarthy af hólmi í vetur með litlum sem engum árangri.

Solbakken þekkir til í enska boltanum eftir að hafa verið leikmaður Wimbledon á sínum tíma.

Hann hóf þjálfaraferil sinn hjá Ham-Kam en tók svo við FCK árið 2006 þar sem hann gerði frábæra hluti. Eftir FCK fór Solbakken til Köln en það gekk ekki eins vel þar og hann var rekinn frá þeim í apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×