Enski boltinn

Toure: Ætla að hjálpa City að verða besta lið heims

Yaya Toure er með stóra drauma fyrir lið Man. City en hann vill að félagið haldi áfram að bæta í og hætti ekki fyrr en það verði besta félagslið heims.

Toure er búinn að vera hjá félaginu siðan árið 2010 er hann kom frá Barcelona. Hann hefur reyndar gefið í skyn að hann vilji fara þangað aftur síðar.

"Ég kom hingað til þess að hjálpa þessu félagi. Ég vil halda áfram að hjálpa þessu félagi að verða besta félag heims," sagði Toure en hann finnur ekki fyrir pressunni um helgina.

"Alls ekki því ég er það reynslumikill. Ég er þegar búinn að vinna nokkra mikilvæga titla og þekki þetta allt," sagði Toure fullur sjálfstrausts en Man. City verður meistari á sunnudag takist liðinu að leggja QPR af velli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×