Vaz Te skaut West Ham upp í úrvalsdeildina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. maí 2012 11:01 Mynd/Nordic Photos/Getty
Ricardo Vaz Te tryggði West Ham 2-1 sigur á Blackpool í dag í úrslitaleik umspilsins um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Sigurmarkið kom þremur mínútum fyrir leikslok. Vaz Te kom til West Ham í janúarglugganum og hefur raðað inn mörkum en ekkert þeirra var jafn mikilvægt og markið hans á Wembley í dag. West Ham er því komið upp í ensku úrvalsdeildina eftir aðeins eins árs fjarveru en Reading og Southampton voru áður búinn að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Blackpool byrjaði leikinn vel og fékk þrjú góð færi á fyrstu fimmtán mínútunum. Robert Green varði boltann í stöngina úr þröngu færi frá Stephen Dobbie á 3. mínútu og Matt Phillips fékk síðan tvö fín færi með mínútu millibili en tókst ekki að skora. Green varði í fyrra skiptið en seinna skotið fór framhjá. West Ham vann sig inn í leikinn þegar á leið hálfleikinn og það var síðan Carlton Cole sem kom liðinu í 1-0 á 35. mínútu eftir að hafa fengið frábæra sendingu frá Matthew Taylor. Cole lagði boltann fyrir sig í teignum og kom honum síðan framhjá Matthew Gilks í marki Blackpool. Blackpool-liðið var ekki lengi að jafna metin í seinni hálfleik því jöfnunarmarkið kom strax á 48. mínútu. Carlton Cole tapaði boltanum til Matt Phillips sem sendi langan og háan boltann inn fyrir á Tom Ince sem skoraði af öryggi. Blackpool fékk nokkur færi næstu mínútur á eftir en tókst ekki að komast yfir. West Ham skapaði sér meira þegar leið á hálfleikinn og Kevin Nolan komst nálægt því að skora þegar hann skaut í slánna en áður hafði Matthew Gilks varið vel frá Carlton Cole. Sigurmarkið kom þó ekki fyrr en á 87. mínútu þegar boltinn hrökk til Ricardo Vaz Te eftir að Cole braust inn í teiginn. Vaz Te þakkaði pent fyrir og þrumaði boltanum upp í þaknetið.
Mest lesið Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti Sonur Rooney á hraðri uppleið hjá Man. United Enski boltinn Njarðvíkingar á toppi Lengjudeildarinnar Fótbolti Heimsmeistarar Chelsea lögðu Leverkusen í æfingaleik Fótbolti Celtics festa þjálfarann í sessi Körfubolti Þýskaland lagði Slóvena í undirbúningi fyrir Eurobasket Körfubolti „Þarf ekkert að ræða við dómarann enda norskan farin að ryðga“ Sport Fyrsti kvendómarinn í bandaríska hafnaboltanum Sport Axel leiðir að öðrum degi loknum Golf Á Tryggvi Guðmundsson kannski enn markametið? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Rooney á hraðri uppleið hjá Man. United Enska augnablikið: Geðsturlun Georgíumannsins Enska augnablikið: 13 ára Hjörvar tók andköf Gjörbreytt framlína Man United með tilkomu Šeško Arsenal tapar fyrstu tveimur leikjum sínum með Gyökeres Maddison frá í að minnsta kosti hálft ár Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Lyon krækir í leikmann Liverpool Partey laus á skilorði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Sjá meira
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti