Muamba ætlar að þakka stuðningsmönnum Tottenham Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. maí 2012 10:45 Nordic Photos / Getty Images
Fabrice Muamba mun mæta aftur á völlinn í kvöld þegar að félagar hans í Bolton mæta Tottenham í ensku úrvalsdeildinni. Muamba hné niður vegna hjartaáfalls í bikarleik gegn Tottenham á White Hart Lane fyrir sex og hálfri viku síðan. Hjarta hans sló ekki af sjálfsdáðum í 78 mínútur og var honum vart hugað líf. En þökk sé snarræði lækna og sjúkraliða á vellinum og sjúkrahúsinu þangað sem hann var fluttur tókst að bjarga lífi hans. Bati hans hefur verið með ólíkindum og var hann fyrir stuttu síðan útskrifaður af sjúkrahúsinu. Hann mun svo heilsa upp á stuðningsmenn Bolton í fyrsta sinn eftir atvikið fyrir leikinn gegn Tottenham í kvöld. Owen Coyle, stjóri Bolton, sagði að hann ætlaði einnig að þakka leikmönnum og stuðningsmönnum Tottenham fyrir sýndan stuðning. „Fabrice veit að honum hefur staðið til boða að koma þegar hann telur sig tilbúinn. Við munum taka honum með opnum örmum," sagði Coyle við enska fjölmiðla. „Hann fær frábært tækifæri í kvöld til að þakka stuðningsmönnum beggja liða. Það var ótrúlegt að hugsa til þess hvernig stuðning hann fékk á sínum tíma." „Hann mun einnig fá tækifæri til að þakka leikmönnum Tottenham. Margir þekkja hann persónulega og það var augljóst að sjá hversu umhugað þeim var um hann." Bolton er enn í fallsæti og því verður leikurinn í kvöld afar mikilvægur. „Við munum ekki gleyma því. Við þráðum allir að hann myndi ná aftur heilsunni og það hefur verið frábært að fylgjast með honum. En við þurfum að sinna okkar vinnu og sem betur fer eru okkar örlög enn í okkar höndum." Leikurinn hefst klukkan 19.00 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 5.
Mest lesið Kærustupar á leið á Ólympíuleika þar sem þau fá ekki að vera saman Sport Hélt uppi meira en aldar gamalli hefð Enski boltinn Sjáðu sigurmark Rios og öll hin frá St. James' Park Enski boltinn Slot gagnrýnir Newcastle: „Þetta var ekki fótboltaleikur“ Enski boltinn Gagnrýndu Bruno: „Hann átti skelfilegan leik“ Enski boltinn Segir að Dowman sé eins og Messi Enski boltinn Borga fjörutíu milljónir punda fyrir kantmann sem skoraði tvö mörk í fyrra Enski boltinn Sjáðu gullstrákana í Vestra fagna: „Vorum bara miklu stærra lið“ Íslenski boltinn Taplausir síðan Caulker kom inn í liðið Íslenski boltinn Græddu meira en milljarð á kokteilum á US Open Sport Fleiri fréttir Borga fjörutíu milljónir punda fyrir kantmann sem skoraði tvö mörk í fyrra Höfnuðu fimmtíu milljóna punda tilboði í Strand Larsen Slot gagnrýnir Newcastle: „Þetta var ekki fótboltaleikur“ Segir að Dowman sé eins og Messi Gagnrýndu Bruno: „Hann átti skelfilegan leik“ Sjáðu sigurmark Rios og öll hin frá St. James' Park Hélt uppi meira en aldar gamalli hefð Van Dijk um Rio: Draumabyrjun en hann verður að vera auðmjúkur Rio setti nýtt Liverpool met Sextán ára strákur tryggði Liverpool öll stigin Selja „Isak er rotta“ treyjur fyrir utan völlinn og eldspýtur fylgja með Slot hefur enga samúð með Eddie Howe vegna Isaks „Getur ekki látið 140 milljóna punda mann í varaliðið“ Isak utan vallar en þó í forgrunni Saka frá í mánuð og missir af Liverpool Botna lítið í Amorim: „Hann er ein taugahrúga“ Rooney feginn að Dowman tók ekki vítið Fernandes ósáttur: „Dómarinn baðst ekki afsökunar“ Sjáðu Grealish fara á kostum og öll mörkin í gær Allt jafnt í Fulham og bæði lið bíða enn eftir fyrsta sigri Fullkomin byrjun Everton á nýja heimilinu Áfram í marki Man. Utd eftir mistökin Onana með í dag en Man. Utd að landa markverði Eze í treyju númer tíu og byrjar á stórleik við Liverpool Þrír leikir í enska: Draumabyrjun Outtara en gömlu félagarnir unnu líka Öruggur sigur Arsenal á nýliðunum Skelfileg mistök City og fullkomin byrjun Spurs Sjáðu markaveisluna hjá Chelsea í Austur-Lundúnum Potter niðurlútur: „Ekki margt jákvætt“ Chelsea svaraði með fimm mörkum og pressan á Potter eykst Sjá meira