Mancini: Newcastle-leikurinn verður erfiðari en leikurinn við United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. maí 2012 14:45 Roberto Mancini, stjóri Manchester City og Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United. Mynd/Nordic Photos/Getty
Roberto Mancini, stjóri Manchester City, er óhræddur að beita hinum ýmsu brögðum í sálfræðistríðinu við Manchester United og nú hefur hann gefið það út að næsti leikur liðsins á móti Newcastle á St James' Park verði erfiðari en leikurinn á móti Manchester United á mánudaginn. Manchester City vann þá nágranna sína 1-0 á heimavelli og tók toppsætið á hagstæðari markatölu. Liðin eiga næði tvo leiki eftir en flestir eru á því að vonir United-manna liggi í að City-liðið tapi stigum á móti sjóheitu liði Newcastle á sunnudaginn. „Newcastle-leikurinn verður okkar erfiðasti leikur, erfiðari en United-leikurinn eins skrýtið og það hljómar. Þeir eru búnir að eiga frábært tímabil og eru að berjast um sæti í Meistaradeildinni. Þeir eru með einn af bestu stjórunum í boltanum og þetta verið erfiður leikur," sagði Roberto Mancini, stjóri Manchester City. „Þessi leikur á sunnudaginn verður bara eins og úrslitaleikur í meistaradeildinni fyrir okkur. Við eigum tvo slíka leiki eftir, á móti Newcastle og QPR. Við verðum að halda einbeitingunni til 13. maí," sagði Mancini. Mancini heldur því enn fram að United sé sigurstranglegra liðið en United-menn eiga eftir leikir við Swansea og Sunderland. „Við höfum ekki afrekað neitt ennþá. Við erum vissulega á toppnum en við verðum að vinna þessa tvo leiki. Við verðum að spila vel og skora mörk ef við ætlum að taka titilinn. United mun ná í sex stig í sínum tveimur leikjum," sagði Mancini.
Mest lesið Vilhjálmur Bretaprins fagnaði titlinum með Aston Villa Fótbolti Hættir við æfingabúðir af ótta við ebólu Fótbolti Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Handbolti Áfrýjun Southampton hafnað og Middlesbrough mun spila úrslitaleikinn Fótbolti Guðrún skoraði skallamark í fimmta sigrinum en tvö Íslendingalið eru jöfn á toppnum Fótbolti „Hefðu átt að vera stærri úrslit“ Íslenski boltinn Víkingur R. - Þróttur R. 1-4 | Sigríður á skotskónum í öruggum sigri Íslenski boltinn Valur - Fram 0-0 | Bragðlaus leikur á Hlíðarenda Fótbolti Jón Dagur lagði upp í tapi gegn nýliðunum Fótbolti Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Handbolti Fleiri fréttir Steve McClaren til Rotherham Arsenal í skrúðgöngu daginn eftir úrslitaleikinn Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Sjáðu mörkin: Titilvonir City urðu að engu og falldraugir vofir yfir Tottenham Sjáðu Englandsmeistara Arsenal tryllast af fögnuði Falldraugurinn fylgir Tottenham í lokaumferðina Guardiola tjáði sig um framtíð sína í starfi Arsenal er Englandsmeistari Southampton rekið úr umspilinu og fær stigarefsingu Jason Daði fer frá Grimsby Ekki sáttur með hugarfar fyrirliðans Horfir með fjölskyldunni og verður mesti stuðningsmaður sögunnar Sjáðu sigurmark Havertz sem slapp við rauða spjaldið Tætir í sig færslu Salah: „Liverpool FC ekki Salah FC“ Dagskráin í dag: Tveir gífurlega mikilvægir leikir Arsenal einu skrefi frá Englandsmeistaratitli Guardiola hætti með Manchester City eftir tímabilið Viðurkenna mistök og markið hefði aldrei átt að standa Haaland verður víkingur í teiknimynd Salah eigingjarn og skuli hent út úr hópnum Sjáðu Bruno jafna metið og von West Ham dofna enn Síðasta verk Salah að sparka Slot? Daninn í stuði og West Ham nálgast fall Jafntefli Brentford og tap Brighton gefa Sunderland séns Fernandes jafnaði stoðsendingametið í sigri United Alonso tekur við Chelsea Gerrard um yfirlýsingu Salah: „Talsverður áfellisdómur yfir stjóranum“ Guardiola: „Ég er fyndinn gaur“ Sjáðu markið hjá Semeyno og bikarlyftinguna Sjá meira