Enski boltinn

Collison: Ótrúlega stór sigur

Collison fagnar í kvöld.
Collison fagnar í kvöld.
Jack Collison var maðurinn sem afgreiddi Cardiff City í fyrri umspilsleik liðanna í ensku B-deildinni. Hann skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri.

"Þetta var ótrúlega stór sigur hjá okkur. Við vildum halda hreinu og skora og gerðum gott betur. Það var auðvitað frábært að skora en þetta var leikur liðsheildarinnar," sagði klisjukenndur Collison.

"Við erum vissulega í frábærri stöðu en það er bara hálfleikur. Við verðum klárir í slaginn á mánudag og vonandi komumst við á Wembley eftir tvær vikur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×