Enski boltinn

Wilkins tekinn ölvaður undir stýri

Wilkins þegar hann aðstoðaði Ancelotti með Chelsea.
Wilkins þegar hann aðstoðaði Ancelotti með Chelsea.
Ray Wilkins, fyrrum knattspyrnustjarna sem er sérfræðingur hjá Sky-sjónvarpsstöðinni í dag, er í ekkert allt of góðum málum eftir að hann var tekinn ölvaður undir stýri.

Wilkins var stöðvaður nálægt heimili sínu aðfararnótt mánudags. Búið er að kæra hann og verður málið tekið fyrir þann 21. maí.

Wilkins lék 84 landsleiki fyrir England á sínum tíma og lék með Man. Utd, Chelsea, QPR og AC Milan á glæsilegum ferli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×