Enski boltinn

Salgado gæti spilað með Beckham á ný

Salgado kveður Blackburn.
Salgado kveður Blackburn.
Varnarmaðurinn Michel Salgado mun yfirgefa herbúðir Blackburn í sumar. Salgado var arfaslakur fyrir Blackburn fyrri hluta móts og hefur ekki spilað mínútu eftir áramót.

Þessi fyrrum leikmaður Real Madrid hefur þó úr nokkrum valkostum að velja og mun klárlega ná sér í fínan launaseðil næstu árin.

Moldríkt félag í Katar hefur verið að bera víurnar í leikmanninn og svo er bandaríska félagið LA Galaxy einnig áhugasamt. Þar myndi hann leika með David Beckham en þeir léku saman hjá Real Madrid á sínum tíma.

Það að Salgado hafi ekki getað neitt í vetur er ekki eina ástæðan fyrir því af hverju hann hefur ekki spilað síðan um áramótin. Hann er nefnilega nálægt því að fá vænan bónus frá félaginu nái hann ákveðið mörgum leikjum.

Blackburn tímir ekki að greiða honum þá peninga og því hefur hann leikið sinn síðasta leik fyrir félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×