Ekki tekist í hendur fyrir leik Chelsea og QPR Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. apríl 2012 22:07 Nordic Photos / Getty Images
Forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar hafa ákveðið að leikmenn Chelsea og QPR munu ekki takast í hendur fyrir leik liðanna í deildinni nú á sunnudaginn. Sami háttur var hafður á þegar liðin mættust í bikarnum fyrr á árinu en hingað til hefur verið talið að leikmenn yrðu látnir takast í hendur á sunnudaginn, rétt eins og í öðrum leikjum úrvalsdeildarinnar. Anton Ferdinand, sem hefur sakað John Terry, fyrirliða Chelsea, um kynþáttaníð í sinn garð var í enskum fjölmiðlum í dag sagður ætla að hunsa Terry og ekki taka í hönd hans fyrir leikinn. Lögreglan rannsakaði málið sem kom upp í leik liðanna í haust. Málið var sent til saksóknara og verður réttað í því þann 9. júlí næstkomandi. „Enska úrvalsdeildin er staðföst í þeirri afstöðu sinni að leikmenn eigi að takast í hendur fyrir leiki," sagði í yfirlýsingu frá stjórn deildarinnar í kvöld. „Hins vegar hefur verið ákveðið að þetta verði ekki gert fyrir leik Chelsea og QPR um helgina eftir viðræður við bæði félögin sem og vegna þeirra lagalegu aðstæðna sem John Terry og Anton Ferdinand eru í." Terry hefur gengið í gegnum ýmislegt á leiktíðinni en fyrirliðaband enska landsliðsins var til að mynda tekið tímabundið af honum vegna þessa máls. Þá mun hann missa af úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu, þar sem Chelsea mætir Bayern München, þar sem hann fékk að líta beint rautt spjald fyrir að reka hnéð í Alexis Sanchez, leikmann Barcelona, í undanúrslitunum nú á þriðjudagskvöldið.
Mest lesið Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Calvert-Lewin hættir ekki að skora Enski boltinn Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Fótbolti Fleiri fréttir Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Sjá meira