Erlent

Mikil leit gerð að mörgæs í Tókýó

Mikil leit er nú gerð að mörgæs sem slapp úr sjávardýragarði í Tókýó höfuðborg Japans.

Síðast sást til mörgæsarinnar á sundi í á sem rennur í Tókýóflóann. Forráðamenn sjávardýragarðsins urðu fyrst varir við að mörgæsin var horfin úr garðinum á sunnudag en síðan hefur mikil leit staðið yfir að henni.

Ekki liggur ljóst fyrir hvernig mörgæsinni tókst að sleppa úr garðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×