Apamaðurinn handtekinn - Dalglish vorkennir ekki Evra Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. janúar 2012 23:12 Evra fékk að heyra það frá stuðningsmönnum Liverpool. Nordic Photos / Getty Images
Lögreglan í Liverpool hefur staðfest að 59 ára karlmaður hafi verið handtekinn fyrir ósiðlega framkomu á viðureign Liverpool gegn Manchester United á laugardag. Ljósmynd af stuðningsmanni að leika eftir apa fór eins og eldur í sinu um netheima að leiknum loknum. Lögreglan vann náið að því með Liverpool að hafa uppi á manninum. „Við getum staðfest að 59 ára karlmaður frá Norður-Wales hefur verið handtekinn. Hann hefur verið færður á lögreglustöðina þar sem hann verður yfirheyrður. Merseyside-lögreglan vill þakka lögreglunni í Norður-Wales og knattspyrnufélaginu Liverpool fyrir aðstoðina við rannsókn málsinsn," segir í yfirlýsingu frá lögreglunni. Talið er að maðurinn hafi með hátterni sínu sýnt kynþáttafordóma gagnvart svörtum leikmanni á Anfield. Flestir telja að fordómarnir hafi verið í garð Patrice Evra, fyrirliða Manchester United. Töluverðrar spennu gætti á Anfield enda sauð upp úr síðast þegar liðin mættust á sama stað. Þá sakaði Evra Úrúgvæann Luis Suarez um kynþáttafordóma. Stuðningsmenn Liverpool bauluðu á Evra allan leikinn. Kenny Dalglish, knattspyrnustjóri Liverpool, hrósaði stuðningsmönnum beggja liða fyrir framgöngu sína. Hann sagðist jafnframt ekki vorkenna Evra neitt þótt baulað væri á hann. „Ertu að grínast í mér? Hvers vegna ætti ég að vorkenna Evra? Ég trúi ekki að þessi spurning sé í forgangi hjá þér. Hefurðu einhvern tímann spilað fótbolta? Það var baulað á mig í gamla daga," sagði Dalglish á blaðamannafundi að leiknum loknum.
Enski boltinn Tengdar fréttir Leitað að stuðningsmanni sem líkti eftir apa á Anfield Lögreglan í Liverpool leitar manns sem sýndi kynþáttafordóma á viðureign Liverpool og Manchester United á Anfield í gær. Á ljósmynd, sem farið hefur eins og eldur í sinu um netheima, virðist áhorfandinn líkja eftir apa. 29. janúar 2012 06:00 Mest lesið Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Sjá meira
Leitað að stuðningsmanni sem líkti eftir apa á Anfield Lögreglan í Liverpool leitar manns sem sýndi kynþáttafordóma á viðureign Liverpool og Manchester United á Anfield í gær. Á ljósmynd, sem farið hefur eins og eldur í sinu um netheima, virðist áhorfandinn líkja eftir apa. 29. janúar 2012 06:00