Gerrard var í sjokki eftir skellinn á móti West Brom Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. ágúst 2012 16:45 Steven Gerrard í leiknum á móti West Brom. Mynd/Nordic Photos/Getty
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, bjóst við allt öðru en að Liverpool-liðið myndi steinliggja á móti West Brom í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar um helgina. West Brom vann leikinn 3-0 en þetta er stærsta tap Liverpool í fyrsta leik tímabilsins síðan 1937. Luis Suarez fann sig ekki í framlínunni, miðverðirnir Daniel Agger og Martin Skrtel fengu báðir dæmt á sig vítaspyrnur og Agger fékk að auki að líta rauða spjaldið. „Ég var í sjokki eftir þessi úrslit. Þetta var ekki leikur sem átti að fara 0-3," sagði Steven Gerrard við Liverpool Echo. „Ég sá fyrir að við færum þangað, stjórnuðum leiknum og tækjum með okkur öll stigin til baka en hlutirnir fóru ekki alveg eins og ég bjóst við," sagði Gerrard. „Það tók okkur fimm mínútur að komast inn í leikinn en eftir það stjórnuðu við leiknum þar til að þeir komust yfir gegn gangi leiksins í lok fyrri hálfleiks. Í seinni hálfleik féllu stóru hlutirnir síðan ekki með okkur," sagði Gerrard. „Við byrjuðum ekki eins og við ætluðum okkur en það er engin ástæða til að örvænta. Þetta er bara einn leikur og einn slæmur dagur. Eftir 3-0 tap þurfa allir að hugsa sinn gang og það er mikilvægt að ég og aðrir reynsluboltar liðsins tökum ábyrgðina á þessu tapi. Við verðum að komast fljótt í gegnum þetta og koma sterkir til baka á móti Hearts á fimmtudaginn," sagði Gerrard að lokum.
Mest lesið Zlatan sendi sænsku táningsstelpunni skilaboð eftir vítaklúðrið Fótbolti Dómarinn í úrslitaleik HM með kartöflu um hálsinn eftir að hann hitti Trump Fótbolti „Svo ákveð ég alltaf að drulla mér ennþá lengra í burtu“ Fótbolti Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Enski boltinn Uppgjörið: Breiðablik-Vestri 1-0 | Blikar náðu Víkingum á toppnum Íslenski boltinn Uppgjörið: KA - ÍA 2-0 | KA sendi KR í fallsæti Íslenski boltinn Heimsmeistararnir stóðu heiðursvörð fyrir svissneska liðið í leikslok Fótbolti Hvítskeggjaði kylfusveinninn stal senunni á Opna breska Golf Vill eyða draugasögunni um að Grindavík spili ekki í Grindavík í vetur Körfubolti Slapp snemma úr sjö ára banni og samdi strax við Skagamenn Körfubolti Fleiri fréttir Rashford nálgast Barcelona Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Hrókeringar í markmannsmálum Man City Ince missir prófið og þarf að borga yfir milljón í sekt Madueke skrifar undir hjá Arsenal Hittust á Íslandi og keyptu Mbeumo Stuðningsmenn Manchester United oftast handteknir Snoop Dogg orðinn einn af eigendum Swansea City Liverpool langt komið með að kaupa Ekitike Eigendur Burnley eignast hitt liðið í Barcelona Liverpool reynir líka við Ekitike Steven Gerrard orðinn afi Liverpool tilbúið að slá metið aftur Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Sjá meira