Enski boltinn

Hoffenheim hafnaði tilboði Swansea í Gylfa

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. Mynd/Nordic Photos/Getty
Þýska netsíðan spox.com greinir frá því í dag að Hoffenheim sé búið að hafna tilboði Swansea í íslenska landsliðsmanninn Gylfa Þór Sigurðsson, Gylfi er á láni hjá Swansea og hefur farið á kostum síðan að kom til Wales í janúar.

Markus Babbel, þjálfari Hoffenheim, tók við liðinu eftir að Gylfi var farinn og hann staðfesti fréttirnar við spox.com.

„Tilboð var ekki ásættanlegt enda alltof lágt. Við höfum ekki fengið nein önnur tilboð og ég býst við honum eftir sumarfrí," sagði Markus Babbel.

Gylfi hefur skorað 7 mörk og lagt upp önnur fimm í 16 leikjum með Swansea í ensku úrvalsdeildinni í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×