Liverpool í viðræður við Martinez Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. maí 2012 17:21 Roberto Martinez, knattspyrnustjóri Wigan. Nordic Photos / Getty Images
Dave Whelan, eigandi enska úrvalsdeildarfélagsins Wigan, hefur staðfest að knattspyrnustjórinn Roberto Martinez hafi fengið leyfi til að ræða við Liverpool. Liverpool er að leita sér að knattspyrnustjóra þar sem að eigendur félagsins ráku Kenny Dalglish í gær. „Ég veit ekki nákvæmlega hvenær áætlað er að hann hitti eigendur Liverpool en ég mun þó aldrei standa í vegi fyrir Roberto," sagði Whelan við blaðamann The Times í dag. Martinez var einn þeirra sem var helst orðaður við stjórastöðuna hjá Liverpool en aðrir hafa einnig verið orðaðir við starfið, svo sem Brendan Rodgers hjá Swansea og Rafa Benitez, sem áður stýrði liðinu. Liverpool hafnaði í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar á nýliðnu tímabili en fagnaði sigri í ensku deildabikarkeppninni. Árangurinn stóðst þó ekki væntingar eigenda Liverpool og því var ákveðið að rifta samningi Dalglish. Robetro Martinez er 38 ára gamall Spánverji sem hefur þjálfað Wigan með góðum árangri síðan 2009. Þar áður stýrði hann Swansea í tvö ár en hann lék einnig með báðum félögum á sínum tíma. Martinez þykir einn besti ungi knattspyrnustjórinn á Bretlandseyjum í dag. Martinez kom Swansea upp í ensku C-deildina árið 2008 og tók svo við Wigan sumarið 2009. Hann hefur haldið Wigan uppi í ensku úrvalsdeildinni öll sín þrjú ár þrátt fyrir að það hafi gengið á ýmsu hjá liðinu á þeim tíma.
Mest lesið Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti KR sækir sænskan landsliðsmann Körfubolti Fleiri fréttir Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn Sjá meira