Enski boltinn

Juventus búið að bjóða í Torres

Framherjaleit Juventus heldur áfram en nú er ljóst að ítölsku meistararnir munu ekki fá Edinson Cavani frá Napoli. Juve hefur nú ákveðið að reyna við Fernando Torres hjá Chelsea.

Samkvæmt heimildum goal.com þá er Juve þegar búið að bjóða Chelsea einar 30 milljónir evra fyrir leikmanninn.

Chelsea myndi ekki bara fá pening heldur er Juve til í að láta landsliðsmanninn Sebastian Giovinco með í kaupunum.

Það sem ýtir enn frekar undir að þessi kaup geti orðið að veruleika er sú staðreynd að stjóri Chelsea, Roberto di Matteo, er mjög hrifinn af Giovinco.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×