Holden frá í sex mánuði til viðbótar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. september 2011 11:15 Nordic Photos / Getty Images
Bolton varð fyrir miklu áfalli í gær þegar í ljós kom að bandaríski miðjumaðurinn Stuart Holden verður frá næstu sex mánuðina. Hann er nýkominn aftur af stað eftir að hafa slitið krossband í mars síðstliðnum. Holden spilaði með Bolton í 2-0 sigri á Aston Villa í enska deildabikarnum í síðustu viku en lagðist í gær aftur undir hnífinn. Var um reglubundna eftirfylgni að ræða eftir upphaflegu aðgerðina og var í fyrstu talið að hann yrði frá í sex vikur vegna þessa. En aðgerðin leiddi í ljós skemmdir í brjóski sem verður til þess að hann verður frá næsta hálfa árið. Þetta eru skelfileg tíðindi fyrir Bolton sem er í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með aðeins þrjú stig eftir sex umferðir. Holden sagði á Twitter-síðu sinni í gær að hann væri niðurbrotinn og eyðilagður maður - hann ætlaði þó sér að koma tvíefldur til baka. „Þetta er mikið áfall fyrir Stuart sem hafði lagt svo mikið á sig í endurhæfingunni eftir krossbandsslitin,“ sagði Owen Coyle, stjóri Bolton. „En það er heilsufar hans sem mestu máli skiptir og verður núna allt kapp lagt á að ná honum góðum á ný.“ Þá var greint frá meiðslum fleiri leikmanna í ensku úrvalsdeildinni í gær. James Vaughan, framherji Norwich, verður frá í fjóra mánuði vegna meiðsla sem hann varð í leik liðsins gegn Sunderland á mánudaginn og þá þarf Tom Huddlestone, leikmaður Tottenham, að fara í aðgerð á ökkla í annað skipti á ferlinum.
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Sjá meira