Eldflaugavarnir beinast ekki að Rússlandi heldur Íran 9. desember 2011 05:00 Vel fór á með Sergej Lavrov og Össuri Skarphéðinssyni í upphafi fundar í gær. „Á þessum fundi minna Rússar og Atlantshafsbandalagið helzt á par sem hefur verið í tilhugalífi, rifizt svolítið, en er aftur farið að velta fyrir sér að rugla saman reytum sínum,“ sagði Össur í ræðu sinni á fundinum.mynd/nato
Eldflaugavarnir Atlantshafsbandalagsins beinast ekki á nokkurn hátt gegn Rússlandi, sagði Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Brussel í gær. Clinton sagði að ekkert ríki utan NATO hefði neitunarvald um áform NATO um að verja sig fyrir hugsanlegum eldflaugaárásum, en bandalagið gerði ekki ráð fyrir slíkum árásum frá Rússlandi. „Þetta hefur ekkert með Rússland að gera. Í hreinskilni sagt snýst þetta um Íran og önnur ríki eða samtök sem eru að þróa eldflaugatækni,“ sagði Clinton. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins voru harðar umræður milli Sergejs Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, og utanríkisráðherra NATO-ríkjanna um eldflaugavarnirnar, hugsanlega NATO-aðild Georgíu og hernaðaraðgerðinar í Líbíu á fundi þeirra í Brussel í gær. Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, orðaði það svo eftir fundinn að orðaskiptin hefðu verið „lífleg“ og „áköf“. Lavrov hélt þó dyrunum opnum fyrir áframhaldandi viðræður og Rasmussen sagðist leggja ríka áherzlu á að samkomulag næðist. „Ef við náum samkomulagi um [eldflaugavarnirnar] færir það samstarf okkar upp á nýtt stig,“ sagði framkvæmdastjórinn. NATO hefur boðið Rússum náið samstarf um eldflaugavarnir, en Rússar hyggjast setja upp sitt eigið gagnflaugakerfi til að verjast hugsanlegum árásum frá löndum á borð við Íran og Norður-Kóreu. Rasmussen sagði að ein hugmynd væri að NATO og Rússland settu upp tvær miðstöðvar, með starfsfólki frá báðum aðilum, sem myndu skiptast á upplýsingum, undirbúa sameiginlegar æfingar og framkvæma sameiginlegt hættumat. „Við viljum að Rússar sjái með eigin augum að eldflaugavarnirnar beinist ekki gegn Rússlandi,“ sagði Rasmussen. Lavrov var á því er hann ræddi við blaðamenn eftir fundinn að NATO hefði ekki sýnt nægilegan samstarfsvilja. Hann ítrekaði fyrri kröfur Rússa um skýrar, lagalega bindandi tryggingar í formi alþjóðasamnings fyrir því að eldflaugavarnir NATO beindust ekki á neinn hátt gegn kjarnorkufælingarmætti Rússlands. Sum NATO-ríkin, Bandaríkin þar á meðal, telja að slíkur samningur myndi binda hendur bandalagsins um of. Rasmussen sagði að tryggingin sem Rússar kölluðu eftir hefði í raun verið fyrir hendi í hálfan annan áratug, allt frá því að undirrituð var samstarfsyfirlýsing NATO og Rússlands árið 1997, þar sem aðilar hétu því að beita ekki valdi hvor gegn öðrum. Nú væri tímabært að ítreka þær yfirlýsingar, um leið og nýtt samkomulag næðist um eldflaugavarnirnar, helzt á fyrri hluta næsta árs. Lavrov sagði að Rússar væru áfram reiðubúnir til viðræðna, að því gefnu að „lögmætar áhyggjur allra aðila“ væru teknar með í reikninginn. „Við getum fundið lausn sem gagnast báðum. Við höfum enn dálítinn tíma en hann styttist með hverjum deginum.“ olafur@frettabladid.is
Mest lesið Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Innlent Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Innlent Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Ekið á hjólreiðamann Innlent Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Innlent Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Innlent Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi Innlent Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Innlent Fleiri fréttir Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Sjá meira