Taarabt yfirgaf Craven Cottage í hálfleik - hljóp frá stuðningsmönnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. október 2011 10:45 Adel Taarabt í leik með QPR. Nordic Photos / Getty Images
Adel Taarabt er búinn að koma sér í vandræði hjá félagi sínu, QPR, sem og stuðningsmönnum þess eftir að hann yfirgaf Craven Cottage, heimavöll Fulham, áður en leik liðanna lauk í gær. Fyrir utan völlinn varð hann svo að hlaupa í burtu frá stuðningsmönnum félagsins sem höfðu gefið sig á tal við hann. Taarabt var skipt af velli í hálfleik en þá var staðan orðin 3-0 fyrir Fulham sem vann að lokum leikinn, 6-0. Fullyrt er í enska götublaðinu Daily Mail að Taarabt hafi skellt sér í sturtu, klætt sig í æfingagalla merktan QPR og svo stormað í burtu. Fyrir utan leikvanginn, rétt hjá strætisvagnastöð á Fulham Palace Road, báru nokkrir stuðningsmenn QPR kennsl á hann og gáfu sig á tal við hann. Taarabt mun hafa leyft nokkrum ungum stuðningsmönnum að láta taka myndir af sér með honum. En síðan snerust nokkrir stuðningsmenn gegn honum og ákvað Taarabt því að hlaupa einfaldlega í burtu. Þess má geta að Taarabt hætti að spila með landsliði Marokkó eftir að hann fór í fússi frá liðinu í júní síðastliðnum en hann var markahæsti leikmaður QPR á síðasta tímabili er liðið tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni. Ef frásögn Daily Mail reynist rétt er ljóst að Taarabt má eiga von á þungri sekt en Neil Warnock, stjóri QPR, vildi ekki tjá sig um málið eftir leik í gær.
Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Sjá meira