Enski boltinn

Armand Traore samdi við QPR

Stefán Árni Pálsson skrifar
Armand Traore í leik með Arsenal.
Armand Traore í leik með Arsenal.
Armand Traore er genginn til liðs við QPR frá Arsenal en þetta kemur fram á vefsíðu Arsenal í dag. Traore mun hafa skrifað undir þriggja ára samning við QPR og verður því samherji Heiðars Helgusonar á þessari leiktíð.

Joey Barton gekk á dögunum til liðs við QPR frá Newcastle en félagið ætlar sér greinilega að styrkja hópinn fyrir lok félagsskiptagluggans annað kvöld.

Traore er 21 árs varnarmaður en hann hefur verið á mála hjá Arsenal síðastliðin 5 ár, en á þeim tíma fór hann á láni til Portsmouth og Juventus.

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, heldur því áfram að selja leikmenn og enn þynnist hópurinn hjá Arsenal. Talið er að Wenger muni festa kaup á fjórum leikmönnum næstu tvo daga. Það verður fróðlegt að fylgjast með því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×