Enski boltinn

Markasúpa í ensku úrvalsdeildinni - dagur nýliðanna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Joey Barton skoraði eitt mark fyrir QPR sem vann WBA 3-0.
Joey Barton skoraði eitt mark fyrir QPR sem vann WBA 3-0. Mynd. / Getty Images
Sex leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í dag og var mikið um fjör, en dagurinn hófst á svakalegum markaleik milli Blackburn Rovers og Arsenal en heimamenn í Blackburn gerðu sér lítið fyrir og sigruðu 4-3.

Nýliðar Norwich fóru í gleðiferð á Reebok völlinn í Bolton og unnu fínan sigur 2-1. Grétar Rafn Steinsson var ekki í leikmannahópi Bolton í leiknum og eins og staðan er þá virðist Íslendingurinn vera heldur aftarlega í goggunarröðinni hjá Owen Coyle, knattspyrnustjóra Bolton. Staðan var 2-0 í hálfleik en rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins fékk Ivan Klasnic, leikmaður Bolton, að líta rauða spjaldið og útlitið virkilega slæmt fyrir heimamenn. Einum færri náðu heimamenn að minnka muninn þegar Martin Petrov skoraði úr vítaspyrnu 25 mínútum fyrir leikslok, en það dugði ekki til og Swansea sigraði.

Þetta var heldur betur dagur nýliðina en Swansea vann flottan sigur á WBA 3-0 á heimavelli. Scott Sinclair og Leroy Lita gerðu sitt markið hver í fyrri hálfleiknum og staðan var 2-0 þegar leikmenn gengu til búningsherbergja. Strax í upphafi síðari hálfleiks komust heimamenn í 3-0 þegar Nathan Dyer skoraði fínt mark og Swansea kláraði þar með leikinn.

Aston Villa tók á móti Newcastle í hörkuleik og það var Gabriel Agbonlahor sem gerði fyrsta mark leiksins í fyrri hálfleik og því var staðan 1-0 fyrir Villa-menn eftir 45 mínútur. Gestirnir frá Newcastle voru ekki lengi að jafna metinn en eftir tíu mínútna leik í síðari hálfleik var staðan orðin 1-1 en Leon Best gerði mark Newcastle.

Everton sigraði Wigan 3-1 á Goodison Park. Wigan komst yfir í leiknum eftir um hálftíma leik þegar Franco Di Santo skoraði. Everton jafnaði metinn tveim mínútum síðar og þar var að verki Phil Jagielka. Fimm mínútum fyrir leikslok skoraði framherjinn Apostolos Vellios fínt mark og kom Everton í frábæra stöðu. Wigan lagði mikla áherslu á að jafna leikinn í lokin og þá opnaðist vörn þeirra. Roysten Drenthe, leikmaður Everton, slapp einn í gegn í blálokin og gulltryggði sigur Everton 3-1.

Úrslit dagsins:

Blackburn Rovers 4 – 3 Arsenal

Bolton 1-2 Norwich

Aston Villa 1-1 Newcastle

Everton 3-1 Wigan

Swansea 3-0 West Brom

Wolves 0-3 QPR

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×