Wales mun heiðra og hylla ævi Gary Speed í næsta landsleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. nóvember 2011 09:15 Gary Speed og Ryan Giggs. Mynd/Nordic Photos/Getty
Phil Pritchard, forseti Wales, segir í viðtali við Guardian að næsti landsleikur Wales, sem verður vináttuleikur 29. febrúar næstkomandi, muni vera tilefni til að heiðra og halda upp á líf Gary Speed sem stytti sér aldur á sunnudagsmorguninn. Gary Speed var aðeins 42 ára gamall en hann var búinn að vera landsliðsþjálfari Wales í eitt ár. Velska landsliðið var búið að gera flotta hluti upp á síðkastið og það var komin bjartsýni í þeirrar herbúðir að liðið gæti komist inn á HM 2014 sem yrði þá fyrsta stórmót Wales síðan á HM 1958 í Svíþjóð. Knattspyrnusamband Wales er ekki enn búið að finna mótherja eða leikstað í umræddum landsleik en það er ljóst að ef leikurinn fer fram í Wales þá mun hann vera spilaður í minningu Gary Speed. Velska sambandið ætlar að gefa fjölskyldu Gary Speed tíma til að syrgja áður en verður farið að skipuleggja hvernig hans verður minnst. Leikurinn 29. febrúar verður engu að síður mikilvægur undirbúningur fyrir undankeppni HM og fyrsti leikur liðsins undir stjórn nýs þjálfara. Það hefur reyndar komið upp hugmynd að leikurinn yrði á milli núverandi og fyrrverandi landsliðsmanna Wales eða á milli velska landsliðsins og úrvalsliðs skipað leikmönnum úr gömlu félögum Gary Speed. Þetta mun allt koma betur í ljós þegar nær dregur.
Enski boltinn HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira