Höfðu betur gegn hersveitum Gaddafís 26. mars 2011 12:00 Frá Líbíu Mynd/AFP
Líbískir uppreisnarmenn hafa nú náð olíuborginni Ajdabiya á sitt vald og höfðu þar betur gegn hersveitum Gaddafís einræðisherra í nótt. Gaddafí virðist þó ekki vera á þeim buxunum að gefast upp. Stuðningsmenn Gaddafís höfðu hertekið borgina í síðustu viku en en uppreisnarmenn höfðu betur í nótt eftir sprengjuárás sjöundu nóttina í röð með stuðningi loftárása bandamanna. Um 100 þúsund manns búa í borginni sem er talin ein af lykilborgum í landinu en sjónvarvottar segja sprengjuárásina í nótt hafa verið þá hörðustu til þessa. Heimildarmaður breska ríkisútvarpsins sagðist hafa talið 20 skriðdreka á vegum Gaddafís eftir árásina sem annaðhvort höfðu verið yfirgefnir eða eyðilagðir. Þá bætti hann því við að fólk hefði staðið uppi á yfirgefnum skriðdrekum og skotið út í loftið, dansað á götum og þeytt bílflautum. Auk þess hefur fólk hrópað slagorð þar sem þeim Obama bandaríkjaforseta og David Cameron forsætisráðherra Bretlands er þakkað. Uppreisnarmenn kemba nú götur borgarinnar og reyna að sjá til þess að engar leyniskyttur á vegum Gaddafí séu enn í borginni. Þó hafa borist fréttir af því að menn einræðisherrans hafi enn yfirráð yfir vesturhluta borgarinnar. Þá segja sjónarvottar að ratsjárstöð hafi verið eyðilögð í borginni Trípólí í nótt. Gaddafí virðist þó ekki vera á þeim buxunum að gefast upp og hefur hækkað alla hermenn og lögreglumenn sína um tign, auk þess sem hann hefur vopnað almenna borgara til þess og hvatt þá til þess að verja land sitt. Hersveitir Gaddafís reyna nú að ná borginni Misrata aftur á sitt vald úr höndum uppreisnarmanna, en bardagar hafa staðið þar yfir síðan í gær.
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Fleiri fréttir Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Sjá meira