Herþotur Gaddafis gerðu loftárásir á tvo bæi 3. mars 2011 10:19 MYND/AP
Herþotur Líbíuhers gerðu í morgun loftárásir á bæinn Brega sem er miðstöð olíuframleiðslu landsins. Einnig herma fregnir að þoturnar hafi skotið flugskeytum á aðra stærri borg í nágrenninu. Barist hefur verið um Brega síðustu daga og náðu hermenn hliðhollir einræðisherranum Gaddafi valdi á bænum í gær en uppreisnarmenn boluðu þeim út síðar um daginn. Heimildir BBC í Brega herma að í kjölfar þess hafi Gaddafi fyrirskipað loftárásir á borgina og að meðal annars hafi verið gerðar árásir á flugvöll sem þjónustar olíuvinnslusvæðin. Talsmaður uppreisnarmanna segir að þoturnar hafi einnig skotið flugskeytum á bæinn Ajdabiya sem hefur verið á valdi uppreisnarmanna í nokkurn tíma. Hollenski herinn staðfesti einnig í morgun að þrír hollenskir hermenn hafi verið handsamaðir af mönnum Gaddafis. Þeir eru sagðir hafa verið að aðstoða evrópubúa við að komast frá Líbíu þegar þeir voru handteknir í borginni Sirte. Stórveldi heimsins hafa síðustu daga rætt um hvort setja eigi flugbann yfir Líbíu og er Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna sögð íhuga það af alvöru. Rússar hafa hinsvegar hingað til verið tregir til að samþykkja slíkt bann.
Mest lesið Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Innlent Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Erlent Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Erlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Erlent Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Innlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Morðingi Abe dæmdur í lífstíðarfangelsi Erlent Fleiri fréttir Eldræða Carney: „Ef þú ert ekki við borðið þá ertu á matseðlinum“ Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Morðingi Abe dæmdur í lífstíðarfangelsi Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Telur Trump gera mistök Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Sjá meira