West Ham jafnaði tvisvar á móti Everton og tryggði sér langþráð stig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. apríl 2010 16:57 Manuel Da Costa fagnar marki sínu í dag. Mynd/Getty Images
West Ham náði í sitt fyrsta stig í ensku úrvalsdeildinni síðan 20. febrúar og endaði um leið sex leikja taphrinu með því að ná 2-2 jafntefli á móti Everton á Goodison Park í dag. Varamaðurinn Araujo Ilan tryggði West Ham jafntefli fjórum mínútum fyrir leikslok og aðeins tveimur mínútum eftir að Everton hafði komist yfir í annað skiptið í leiknum. Everton var búið að vinna sjö heimaleiki í röð fyrir leikinn í dag en liðið er áfram í áttunda sæti deildarinnar fjórum stigum á eftir Aston Villa. West Ham er með stigi meira en Hull sem situr í síðasta fallsætinu en Hull á leik inni. Diniyar Bilyaletdinov kom Everton í 1-0 á 24.mínútu eftir sendingu frá Tim Cahill en þetta var fyrsta alvöru færi liðsins í leiknum. Mido fékk möguleika á að jafna leikinn tólf mínútum síðar en hann lét þá Tim Howard, markvörð Everton, verja frá sér vítaspyrnu. West Ham jafnaði leikinn á 60. mínútu þegar Manuel Da Costa kom boltanum yfir marklínuna eftir þvögu inn í vítateig Everton í kjölfar hornspyrnu Mark Noble. Aiyegbeni Yakubu kom Everton aftur yfir á 84.mínútu með skalla eftir sendingu frá Leighton Baines en það tók varamanninn Araujo Ilan aðeins tvær mínútur að jafna þegar hann skallaði boltann í markið eftir stoðsendingu frá Julien Faubert.
Mest lesið Albert ekki meira með íslenska landsliðinu Fótbolti Neitar að biðjast afsökunar á niðrandi færslu um Heimi Fótbolti „Þetta er þorpið manns“ Íslenski boltinn Íslenska landsliðið í bakgarðshlaupum klárt Sport Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk Íslenski boltinn Kane klúðraði víti og heimsmeistararnir voru fljótir að refsa Fótbolti Vill að mótherji hans fari í bann eftir árekstur Formúla 1 Mæta til leiks gegn Ísrael: „Líður engum vel með að spila þennan leik“ Fótbolti Leikmaður Írlands dregur sig úr leikmannahóp gegn Ísrael Fótbolti Umfjöllun: Ísland – Eistland 1-1 Svekkjandi jafntefli á Laugardalsvelli Fótbolti Fleiri fréttir Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Sjá meira