Erlent

Fimm dæmdir til dauða vegna óeirða í Kína

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglumenn í Urumqi í Kína. Mynd/ AFP
Lögreglumenn í Urumqi í Kína. Mynd/ AFP
Fimm manns hafa verið dæmdir til dauða fyrir manndráp og aðra glæpi í óeirðum í kínverska héraðinu Xinjiang í lok júlí. Þá dæmdi dómstóll í Urumqi, höfuðborg héraðsins, tvo menn í ævilangt fangelsi og aðrir sex fengu vægari fangelsisdóma.

Óeirðirnar í Xinjiang hófust þann 5. júlí síðastliðinn þegar átök urðu milli múslimskra frumbyggja í héraðinu og aðkomumanna. Að minnsta kosti 200 fórust í átökunum og 1600 særðust. Þá flýðu þúsundir múslima höfuðborgina af ótta við afleiðingar sem þeir töldu að myndu hljótast af átökunum.

Þetta eru verstu óeirðir í marga áratugi í Kína, eftir því sem fram kemur á vef Jyllands Posten.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×