Erlent

Vilja að verkjalyf verði lyfseðilsskyld

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Verkjalyf. Mynd/ Valgarður.
Verkjalyf. Mynd/ Valgarður.
Það ætti að vera liðin tíð að á heimilum fyrirfinnist stór lyfjaglös með lífshættulegum lyfjum. Þetta segir talsmaður GlaxoSmithKline lyfjaframleiðandans, sem framleiðir Panodil. Hann telur að það ætti að þurfa að framvísa lyfseðli þegar meira en 20 höfuðverkjartöflur eru keyptar í einu.

Tilefni ummæla hans eru fréttir af því að sífellt fleiri stúlkur verða fyrir lyfjaeitrun. Tilfellin hafa raunar margfaldast síðustu tíu ár, að því er Danmarks Radio fullyrðir.

Svo virðist vera sem meirihluti sé fyrir því í danska þinginu að herða lyfjalöggjöfina.  „Svo framarlega sem lyfsseðilsskyldan hefur jákvæð áhrif ættum við að taka hana upp," segir Preben Rudiengaard, formaður heilbrigðisnefndar danska þingsins, í samtali við Politiken.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×