Farþegar yfirbuguðu sprengjumann Heimir Már Pétursson skrifar 26. desember 2009 11:59
Tilraun var gerð til að sprengja upp farþegaþotu með tæplega þrjú hundruð manns innanborðs skömmu fyrir lendingu í Detroit í Bandaríkjunum í gær. Farþegum tókst að yfirbuga mann sem hafði vafið sprengjuefni um fætur sér. Eftirlit með farþegum til Bandaríkjanna hefur verið hert og má hver einasti farþega á leið þangað búast við líkamsleit. Flugvél Delta flugfélagsins með 278 farþega og ellefu manna áhöfn innanborðs átti eftir um tuttugu mínútur til lendingar í Detroit í gær, þegar farþegar heyrðu hvell og reykur myndaðist við sæti farþega í flugvélinni. Nokkrir farþeganna brugðust skjótt við og yfirbuguðu manninn en í hamaganginum óðu þeir yfir sæti og aðra farþega til að yfirbuga manninn. Maðurinn var síðan leiddur fremst í flugvélina með logandi buxnaskálmar og mikið brunninn á fótleggjum. Flugliðar náðu að slökkva eldinn með handslökkvitæki. Maðurinn sem um ræðir er sagður heita Farouk Abdul Mutallab, tuttugu og þriggja ára Nígeríumaður. Talið er að hann hafi stundað verkfræðinám í Bretlandi. Líklegt er að hann hafi flogið með KLM flugfélaginu frá Lagos í Nígeríu til Amsterdam í gær þar sem hann hélt svo áfram með flugvél Delta flugfélagsins til Detroit. Lögregla segir að hann hafi verið með þróaðan sprengibúnað límdan við fætur sér, sem samanstóð af púðri og ótilgreindum vökva. Hann hafi síðan reynt að gera sprengiefnið virkt með því að blanda vökvanum við púðrið. Eftir lendingu lýstu farþegar því hvernig skelfing braust út á meðal þeirra. Maðurinn hafi öskrað hástöfum að hann væri liðsmaður al-Quaida. Sumir farþeganna sögðu að þeir hafi óttast að lífi þeirra væri lokið. Mikill viðbúnaður var þegar flugvélin lenti farsællega á flugvellinum í Detroit. Barack Obama forseti Bandaríkjanna sem var í jólaleyfi með fjölskyldu sinni á Hawai setti sig þegar í samband við Þjóðaröryggisráðið og Heimavarnarráðuneytið. Tilræðismaðurinn brenndist mjög illa á fótum og er nú á sjúkrahúsi undir eftirliti lögreglu.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Sjá meira