Enski boltinn

Kalou hæstánægður með nýjan samning

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Salomon Kalou fagnar marki í leik með Chelsea.
Salomon Kalou fagnar marki í leik með Chelsea. Nordic Photos / Getty Images

Salomon Kalou segist vera hæstánægður með nýja samninginn sem hann gerði við Chelsea nú á dögunum.

Kalou er nú samningsbundinn Chelsea til loka tímabilsins 2012 en hann kom til félagsins frá Feyenoord árið 2006.

„Ég er ánægður með að ég fái tækifæri til bæta minn leik og spila fleiri leiki með Chelsea næstu þrjú árin," sagði Kalou í samtali við enska fjölmiðla.

Hann var orðaður við Arsenal um tíma en segist sáttur við sína ákvörðun. „Ég hafði heyrt að það væri einhver áhugi á mér hjá öðrum félögum en ég tel að ég hafi tekið bestu ákvörðunina. Vonandi að stjórinn gefi mér fleiri tækifæri og ég fái að spila meira til að bæta mig."

Kalou lék með landsliði Fílabeinsstrandarinnar um síðustu helgi sem tryggði sér þá þátttökurétt á HM í Suður-Afríku á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×