Erlent

Bænaturnar múslima bannaðir í Sviss

Frá bænaturni eru múslimar kallaði til bæna. Fjórir slíkir turnar eru nú þegar í Sviss.
Frá bænaturni eru múslimar kallaði til bæna. Fjórir slíkir turnar eru nú þegar í Sviss. Mynd/AP
Svisslendingar samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu í dag frumvarp sem felur í sér að bannað verður að reisa fleiri bænaturna við moskur múslima í landinu. Frá bænaturni eru múslimar kallaði til bæna. Rúmlega 57% þeirra sem greiddu atkvæði í kosningunni studdu bannið.

Fjórir bænaturnar eru í Sviss nú þegar en margir Svisslendingar telja að rísi fleiri turnar verði það upphafið af því að breiða íslamstrú um gervallt landið.

Um það bil 400 þúsund múslimar búa í Sviss og er íslamstrú útbreiddust trúarbragða þar í landi á eftir kristni. Samtök á vegum múslima hafa margoft farið fram á að fá að byggja fleiri bænaturna en ávallt fengið synjun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×