Erlent

Viðbúnaðarstig lækkað vegna skógarelda

Frá baráttu slökkviliðsins við kjarr- og skógareldanna í Kaliforníu.
Frá baráttu slökkviliðsins við kjarr- og skógareldanna í Kaliforníu. Mynd/AP
Slökkviliðsmenn í Kaliforníu í Bandaríkjunum er nú við það að ná tökum á kjarr- og skógareldum sem geisað hafa í og við Santa Barbara síðustu daga. Í nótt og í morgun hefur um helmingur af 30 þúsund brottfluttum íbúum fengið að snúa aftur heim en viðbúnaðarstig hefur verið lækkað.

Íbúar eru þó hvattir til að vera áfram á varðbergi. Vinda tók að lægja á svæðinu í gær og gekk slökkvistarf þá betur. Eldar loga þó víða enn. Ríflega 34 ferkílómetra svæði hefur brunnið síðustu daga og 80 heimili eyðilagst. Enginn hefur farist í eldunum en 13 slökkviliðsmenn hafa slasast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×