Enski boltinn

Sjáðu blöðrumark Sunderland og öll mörk dagsins á Vísi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hérna má sjá rauðu blöðruna þvælast fyrir Pepe Reina markverði Liverpool.
Hérna má sjá rauðu blöðruna þvælast fyrir Pepe Reina markverði Liverpool. Nordic Photos / Getty Images

Eins og alltaf má sjá öll mörk helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni hér á Vísi. Smelltu hér til að sjá mörkin.

Mark dagsins er án nokkurs vafa eina markið sem skorað var í leik Sunderland og Liverpool.

Stuðningsmaður Liverpool hafði kastað blöðru inn á völlinn. Þegar Darren Bent átti skot að marki strax á fimmtu mínútu leiksins fór boltinn í blöðruna með þeim afleiðingum að Pepe Reina, markvörður Liverpool, ruglaðist í ríminu og náði ekki að verja skotið.

Smelltu hér til að sjá samantekt úr leik Sunderland og Liverpool.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×