Erlent

86 dauðsföll í fjórum löndum

Óli Tynes skrifar
Flensan sem greindist fyrst í litlu þorpi í Mexíkó fyrir einum mánuði hefur nú breiðst út til fjörutíu og þriggja landa.

Tölur um sýkingu breytast frá einni klukkustund til annarrar. Eftir því sem næst verður komist hafa nú borist staðfestingar á samtals 11.169 tilfellum í 43 löndum.

Dauðsföll eru 86 í fjórum löndum. Mest er útbreiðslan í Bandaríkjunum þar hefur verið tilkynnt um 5.764 tilfelli. Þar hafa orðið níu dauðsföll.

Næstmest er útbreiðslan í upphafslandinu Mexíkó. Þar hafa verið staðfest 3892 tilfelli. Þar eru dauðsföllin hinsvegar langflest eða sjötíu og fimm.

Tvö önnur lönd hafa tilkynnt um dauðsföll, Kanada og Costa Rica. Þar hefur einn dáið í hvoru landi.

Öll Norðurlöndin hafa tilkynnt um staðfest tilfelli. Síðast var það Ísland sem staðfesti eitt tilfelli í dag. Grunur leikur á að fjórir aðrir úr sömu tilfelli séu einnig smitaðir. Sá sem hefur verið staðfestur er nýkominn frá Bandaríkjunum.

Utan Mexíkós er flensan yfirleitt væg. Hún gengur yfir á nokkrum dögum eins og venjuleg flensa gerir. Hún svarar líka ágætlega ef sjúklingum er gefið lyfið Tamiflu. Af því er nóg til á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×