Erlent

Gassprenging í Moskvu

Öflug sprenging varð í gasleiðslu í suðvesturhluta Moskvu í nótt. Eldur kviknaði í nærliggjandi byggingu og voru fimm fluttir á sjúkrahús með brunasár.

Skrúfað hefur verið fyrir gasflutning til borgarhlutans meðan rannsakað verður hvað olli sprengingunni. Júrí Lúsjkov, borgarstjóri í Mosvku, kom þegar á vettvang. Hann segir nær víst að bilun hafi orðið í leiðslunni, hugsanlega hafi þrýstingur aukist skyndilega og það valdið sprengingunni.

Nokkuð hefur verið um gasleka í Moskvu síðustu mánuði en gasleiðslukerfið þar í borg mun nokkuð fornfálegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×