Erlent

Blóðug átök í Íran - frændi forsetaframbjóðanda myrtur

Heimir Már Pétursson skrifar

Að minnsta kosti fjórir mótmælendur hafa verið skotnir til bana af öryggissveitum í Teheran höfuðborg Írans í dag, þar sem þúsundir stjórnarandstæðinga kröfðust afsagnar forseta landsins.

Fullyrt er að einn hinna föllnu sé frændi Hossein Mousavi, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, sem tapaði í forsetakosningum fyrir Mahmoud Ahmadinejad í sumar.

Tugir þúsunda Írana komu saman víðs vegar um landið í dag til að minnast hetjudauða Imam Hussein's fyrir sjö öldum, en hann var barnabarn Múhames spámanns og talinn einn heilagasti maður Síta múslíma. Mikill óróleiki hefur verið í landinu frá því í forsetakosningunum í júní þegar Mahmoud Ahmadinejad forseti náði endurkjöri með kosningasvindli að mati stjórnarandstæðinga. Þeir höfðu verið varaðir við harkalegum viðbrögðum lögreglu og öryggissveita ef þeir gripu til mótmæla í dag. Það gerðu þeir engu að síður þúsundum saman.

Lögregla hafði girt af götur sem liggja að miðborg Teherans. Þegar mannfjöldi nálgaðist miðborgina reyndi lögregla að dreifa mannfjöldanum með táragasi.

Það tókst ekki og skutu lögreglumenn þá fyrst aðvörunarskotum en síðan skutu þeir beint að mannfjöldanum og felldi fjóra, að sögn sjónarvotta og heimasíðna stjórnarandstæðinga. Mannfjöldinn hrópaði "dauði yfir einræðisherranum" og átti þar við forsetann. Einn hinnar föllnu var eldri maður sem skotinn var í höfuðið.

Erlendum fjölmiðlum er haldið frá miðborginni og geta því ekki staðfest fréttirnar. Mótmælendur köstuðu grjóti að öryggissveitarmönnum og kveiktu í nokkrum mótorhjólum þeirra.

Stjórnvöld hafa hægt mjög á internetsambandi við landið til að hindra myndsendingar frá stjórnarandstæðingum en einu myndirnar af atburðum dagsins eru samt frá þeim komnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×