Erlent

Neda Soltan kjörin maður ársins - harðvítug átök í Íran

Frá mótmælum í París þar sem fjöldi manna voru með andlitsmyndir af Nedu.
Frá mótmælum í París þar sem fjöldi manna voru með andlitsmyndir af Nedu.

Hin tuttugu og sex ára gamla Neda Soltan frá Íran hefur verið kjörin maður ársins af breska tímaritinu Times. Neda var skotin í brjóstkassann í júní þegar hún mótmælti ásamt þúsundum eftir að Mahmoud Ahmadinejad var endurkjörinn forseti Írans. Mótmælendur vildu meina að hann hefði svindlað í kosningunum.

Dramatískt myndskeið náðist þegar Neda var skotin. Það fór eins og eldur um sinu á netinu og brátt varð Neda að andliti byltingar í Íran sem virðist enn standa yfir.

Það var síðast í dag sem íranskar öryggisveitir og umbótasinnar lentu í átökum í miðborg Teheran. Átökin byrjuðu þegar 200-300 manns reyndu að koma saman á Enghelab-torginu í Teheran.

Mikil spenna hefur verið á milli öryggisveita í Íran og umbótasinnum eftir að klerkurinn Ayatollah Hoseyn Ali Montazeri lést í síðustu viku. Fyrst lenti öryggissveitum og umbótasinnum saman í jarðarförinni í heimaborg hans, Qom.

Undanfarna daga hafa umbótasinnar og öryggissveitir einnig lent saman í tveimur öðrum borgum. Átökin hafa verið harkaleg en öryggisveitir hafa meðal annars beitt táragasi til þess að tvístra mannfjöldanum.

Hér má lesa umfjöllun Times í London um Nedu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×