Kókaínlöggur handteknar eftir flókna leyniaðgerð 6. desember 2009 00:00 Teikning af Juan Acosta í dómsal í gær.
Lögreglumaðurinn Juan Acosta, sem sinnti störfum sínum í New York, Bandaríkjunum, hefur verið ákærður fyrir að flytja kíló af kókaíni á milli bæjarhluta gegn greiðslu frá fíkniefnabaróni. Aftur á móti reyndist baróninn vera lögreglumaður í dulargervi. Innra eftirlitið í lögreglunni fór að gruna Acosta og félaga hans, Yorick Rafael Corniel-Perez um græsku árið 2005 eftir að þeir rændu nokkru hundruð þúsund dollurum úr fíkniefnamáli sem lögreglan hafði til rannsóknar. Í kjölfarið var leyniaðgerð undirbúin þar sem lögreglumaður þóttist vera fíkniefnabarón. Hann réði síðan Acosta og félaga hans til starfa fyrir sig við að flytja fíkniefni á milli bæjarhluta en þeir ferjuðu efnin keyrandi á merktri lögreglubifreið. Þeir áttu svo að fá fimmtán þúsund dollara fyrir viðvikið. Acosta og félaginn tóku við pakka sem þeir álitu innihalda kíló af kókaíni. Svo keyrðu þeir ætluðu efnin á áfangastað. Þar tók lögreglan á móti þeim og handtók þá. Mennirnir mættu fyrir rétt í gær þar sem málið var þingfest í dómsal en gáfu ekki upp afstöðu til sakarefnisins. Þeir þurfa að sitja í fangelsi þar til dómur fellur í málinu. Móðir Acosta vildi ekki tjá sig við fréttamann New York Post samkvæmt frétt á vefsíðu þeirra, hún sagði vandamálin vera næg. Acosta á þrjú börn, þau eru 2, 5 og 8 ára gömul.
Mest lesið Haft höggbor beint fyrir utan í hálft ár og kominn með nóg Innlent Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Innlent Thunberg meðal 500 handtekinna aðgerðasinna Erlent Stímir óhrædd í gin ísraelska sjóhersins Innlent Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Innlent Demókrötum kennt um og uppsögnum hótað Erlent Hafði hvorki þekkingu né umboð til að tjá sig um fjármálin Innlent Kom ráðherra á óvart að viðræðum hefði verið slitið Innlent Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Erlent Vilja heimila gjaldtöku vegna fjarheilbrigðisþjónustu og útkalls án flutnings Innlent Fleiri fréttir Thunberg meðal 500 handtekinna aðgerðasinna Demókrötum kennt um og uppsögnum hótað Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Jane Goodall látin Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Brýnt að koma rafmagni aftur á kjarnorkuverið „Dimmur dagur“ í sögu Slóvakíu Völdu tveggja ára stúlku sem nýja jómfrúargyðju Höfuðpaur tælingarhóps dæmdur í þrjátíu og fimm ára fangelsi Chunk er loksins „feitasti“ björninn Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Dómari skikkar lækna til að vanda skriftina Tæplega hundrað nemenda saknað Gríðarleg öryggisgæsla í Kaupmannahöfn í aðdraganda leiðtogafundar Ríkisreksturinn í Bandaríkjunum í limbó Tala látinna hækkar á Filippseyjum Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Fleiri en tuttugu látnir eftir jarðskjálfta á Filippseyjum Sendiherra fannst látinn í miðborg Parísar Tillögum Trumps lýst sem uppgjöf Segir herforingjum að búa sig undir átök gegn innlendum „óvinum“ Aðstoðarmaður AfD-leiðtoga í fangelsi fyrir njósnir Stefnir í fyrstu ríkisstöðvunina í sjö ár Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Vilja Diddy í ellefu ára fangelsi „Við erum ekki í stríði en við búum ekki við frið“ Um þúsund manns teknir af lífi í Íran það sem af er ári Tugir drengja fastir í rústum skóla sem hrundi til grunna Leiðtogar fagna áætluninni en bíða svara frá Hamas Misstu allt samband við Internetið Sjá meira