Erlent

Harmleikurinn í Perm: Forseti Rússlands lýsir yfir þjóðarsorg

Dmtry Medvedev.
Dmtry Medvedev.

Forseti Rússlands, Dmtry Medvedev, hefur lýst yfir þjóðarsorg á mánudaginn næsta vegna harmleiksins sem varð í borginni Perm þar sem 109 einstaklingar létust og yfir 130 slösuðust vegna eldsvoða í veislutjaldi á næturklúbbi.

Medvedev sendi aðstandendum fórnalambanna samúðarkveðju í dag og tilkynnti um leið þjóðarsorg Rússlands á mánudag. Þá verður flaggað til hálfs og allar sjónvarps- og útvarpsstöðvar í Rússlandi munu aflýsa skemmtiefni yfir daginn.


Tengdar fréttir

100 látnir eftir flugeldasýningu

Að minnsta kosti eitt hundrað manns eru látnir eftir sprengingu í rússnesku borginni Perm. 140 til viðbótar hlutu áverka.

109 látnir í Perm - klúbbaeigendur hugsanlega ákærðir

Alls hafa 109 manns látist í eldsvoðanum í Perm í Rússlandi. Sprengingin varð í miðri flugeldasýningu sem haldin var til að fagna átta ára afmæli skemmtistaðar í borginni. Það var í raun ekki sprengingin sem banaði fólkinu heldur varð hún til þess að eldur kviknaði í veislutjaldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×