Erlent

Íranir segja CIA fjármagna mótmælin

Íranska innanríkisráðuneytið segir að bandaríska leyniþjónustan, CIA, fjármagni mótmæli síðustu daga gegn úrslitum forsetakosninganna í landinu fyrir tæpum hálfum mánuði. Það hafi Bretar og Ísraelar einnig gert.

Mótmælendur hafa krafist þess að kosið verði upp á nýtt því Mahmoud Ahamdeinejad hafi tryggt sér endurkjör með svikum. Því vísar byltingarráð landsins á bug. Mótmælendur hafa fallið í blóðugum átökum við lögreglu en ekki er vitað með vissu hve margir sökum þess hver írönsk yfirvöld hafa takmarkað mjög fréttaflutning erlendra fjölmiðla af mótmælunum.

Í morgun sagði Ali Khamenei æðstiklerkur að ekki yrði látið undan þrýstingi utanfrá. Manouchehr Mottaki, utanríkisráðherra Írans, sagði síðan að verið væri að skoða hvort það ætti að draga ætti úr samskiptum við Breta. Bresk stjórnvöld hafa rekið tvo íranska sendifulltrúa heim frá Bretlandi eftir að ráðamenn í Teheran sendu tvo breska sendifulltrúa heim.

Írönsk stjórnvöld hafa einnig aukið við ásaknir um það sem þau segja óeðlileg afskipti vestrænnar ríkja af þróun mála í Íran. Í tilkynningu sem innanríkisráðuneytið í Íran sendi frá sér í morgun er fullyrt að bandaríska leyniþjónustan, CIA, hafi stutt mótmælendur með fjárveitingu. Það hafi Bretar og Ísraelar einnig gert.


Tengdar fréttir

Bretar kalla fjölskyldur heim frá Íran

Breska utanríkisráðuneytið hefur kallað fjölskyldur starfsmanna sendiráðsins í Íran heim vegna óróleika í landinu í kjölfar forsetakosninganna. Starfsmenn sendiráðsins munu dvelja áfram í Íran og sinna störfum sínum.

Breskir embættismenn reknir frá Íran

Tveir breskir embættismenn í Íran voru sendir úr landi í gær. Það var gert í kjölfar ásakana um að bresk stjórnvöld hafi skipt sér með óeðlilegum hætti af kosningunum í Íran hinn 12. júní síðastliðinn.

Obama fordæmir ofbeldið í Íran

Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, fordæmdi aðgerðir írönsku ríkisstjórnarinnar gagnvart mótmælendum harðlega í dag.

Komu í veg fyrir hryðjuverkaárásir á kjördag

Írönsk yfirvöld segjast hafa komið í veg fyrir sprengjuárásir hryðjuverkamanna á kjördag í Íran fyrir tæpri viku. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneyti leyniþjónustumála tókst lögreglu og leyniþjónustustofnunum í Íran að koma í veg fyrir sprengjuárásir í moskum og á fjölförnum stöðum í höfuðborginni Teheran síðasta föstudag þegar forsetakosningar fóru fram í landinu.

Íranir endurskoða tengslin við Breta

Utanríkismálanefnd íranska þingsins, lagði í dag að utanríkisráðuneytinu, að endurskoða tengslin við Bretland vegna óviðurkvæmilegra afskipta af hinum umdeildu forsetakosningum.

Mótmælendur deyja í Íran

Ríkissjónvarpsstöðin í Íran greindi frá því í gær að þrettán hefðu látist í átökum mótmælenda og óeirðalögreglu í gær í miðborg Teheran í Íran. Fréttastofur á borð við CNN segja þó að tala látinna sé mun hærri.

Hluti atkvæða endurtalinn í Íran

Byltingarráðið í Íran hefur ákveðið að endurtelja tíu prósent atkvæða í þeim tilgangi að róa mótmælendur sem halda því fram að niðurstöður kosninganna 12. júní síðastliðinn séu rangar. Tugir þúsunda mótmæltu í dag í miðborg Teheran í Íran.

Rólegra í Teheran

Ró færðist yfir götur Teheran í Íran í dag eftir að ríkissjónvarpsstöðin þar í landi greindi frá því að tíu til viðbótar hafi látist í átökum mótmælenda og óeirðalögreglu í gær. Sjónvarpsstöðin greindi líka frá því lögregla hafi handtekið dóttur og fjóra aðra ættinga fyrrverandi forseta landsins, Hashemi Rafsanjani, í gær. Rafsanjani er einn valdamesti maður landsins.

Hvetur Írani til að hætta mótmælum vegna kosninganna

Khamenei, æðstiklerkur í Íran, hvetur landa sína til að hætta mótmælum vegna forsetakosninganna í síðustu viku. Haldi mótmæli áfram verði blóðbað vegna þeirra á ábyrgð frambjóðenda sem játi sig enn ekki sigraða.

Byltingarráðið ógildir ekki forsetakosningarnar

Byltingarráðið í Íran ætlar ekki að ógilda forsetakosningarnar sem fram fóru í landinu fyrr í mánuðinum enda bendi ekkert til alvarlegra annmarka á framkvæmd þeirra. Stjórnarandstæðignar eru hvattir til að mótmæla frekar. Guðjón Helgason.

Merkel gagnrýnir æðsta klerk Írans

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, gagnrýnir Ali Khamenei, æðsta klerk Írans, og segir ræðu sem hann flutti í morgun hafa verið mikil vonbrigði.

Mousavi hvetur mótmælendur í Íran

Mir Hossein Mousavi, forsetaframbjóðandi og leiðtogi írönsku stjórnarandstöðunnar, hvetur fylgismenn sína til að halda áfram mótmælum gegn endurkjöri Mahmoud Ahmadinejad forseta.

Mótmælt sjötta daginn í röð

Búist er við fjölmennum mótmælum í Íran sjötta daginn í röð vegna úrslita forsetakosninga þar í landi fyrir tæpri viku. Byltingarráðið í Íran hefur kallað frambjóðendurna þrjá sem biðu ósigur til að bera vitni fyrir helgina vegna rannsóknar á ásökunum um kosningasvik.

Ban Ki-moon krefst þess að Íranar láti af ofbeldi

Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, krefst þess að stjórnvöld í Íran láti þegar af handtökum og ofbeldi gegn mótmælendum sem undanfarna daga hafa haft uppi hávær mótmæli vegna úrslita forsetakosninganna þar í landi en grunur leikur á að endurkjör Mahmouds Ahmadinejad forseta hafi verið knúið fram með vafasömum hætti.

Háskólanum í Teheran rústað - myndir á Facebook

Myndir voru birtar á samskiptasíðunni Facebook í dag sem sagðar eru sýna eyðileggingu í Háskólanum í Teheran. Varalið hliðhollt Íransforseta er sagt hafa ráðist þar með ofbeldi gegn stjórnarandstæðingum. Úrslitum forsetakosninganna í síðustu viku var áfram mótmælt í írönsku höfuðborginni í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×