Erlent

Vetrarhörkur beggja vegna Atlantshafs

Frá Baltimore í Bandaríkjunum í dag. Mynd/AP
Frá Baltimore í Bandaríkjunum í dag. Mynd/AP
Mikil snjókoma var á meginlandi Evrópu í dag og lágu samgöngur víða niðri. Lestarferðir stöðvuðust og miklar tafir urðu á millilandaflugi. Miklar frosthörkur eru í mið-Evrópu og fór hitastigið víða niður í mínus 20 gráður. Að minnsta kosti 20 hafa látið lífið, flestir í Póllandi.

Miklar vetrarhörkur eru á austurströnd Bandaríkjanna en þar hafa snjóstormar valdið því að samgöngur hafa legið meira og minna niðri. Mörg þúsund heimili eru án rafmagns og að minnsta kosti fimm hafa látið lífið. Mikil snjókoma var í Washington og náði snjódýptin sextíu sentímetrum en þar hefur aldrei áður jafn mikill snjór fallið miðað við árstíma síðan mælingar hófust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×